Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 23. nóvember 2015 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Fór að hágráta er Ronaldo hunsaði aðdáendur
Mynd: Marca
Cristiano Ronaldo var ekki í sérlega góðu skapi eftir æfingu hjá Real Madrid í morgun, aðeins tveimur dögum eftir sárt tap gegn Barcelona á eigin heimavelli.

Aðdáendur Ronaldo biðu eftir honum á bílastæðinu fyrir utan æfingasvæði Real en stórstjarnan vildi ekki stoppa bílinn til að gefa eiginhandaráritanir.

Portúgalinn keyrði framhjá aðdáendunum og var ein stelpa sem sýndi sérstaklega sterk viðbrögð og fór að hágráta þegar hún missti af tækifærinu sínu til að fá áritun.

Næsti leikur Real Madrid er á miðvikudaginn, gegn Shakhtar Donetsk í Meistaradeildinni.


Athugasemdir
banner