Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 23. nóvember 2015 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
PSG spilar næstu leiki í sérstökum treyjum
Mynd: 101gg
Franska stórveldið PSG mun ekki vera með auglýsingu frá Fly Emirates á treyju sinni næstu tvo leiki.

Fly Emirates er flugfélag staðsett í Dúbaí, í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, og hefur gefið franska félaginu leyfi til að taka auglýsingu sína af treyjunni.

Skilaboðin „Je Suis Paris" verða á treyjunni í stað Fly Emirates og er þetta gert til að minnast hryðjuverkaárásanna í París þann 13. nóvember.

Leikmenn PSG munu klæðast nýju treyjunni, sem er alveg eins og sú gamla, gegn Kára Árnasyni og félögum í Malmö í vikunni og svo gegn Troyes næstu helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner