Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 23. desember 2017 17:57
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Brunt: Höfum oft spilað verr en þetta á tímabilinu og fengið stig
Mynd: Getty Images
Það gengur lítið sem ekkert upp hjá West Brom þessa dagana og þeir töpuðu enn einum leiknum í dag.

Mótherjinn í dag var Stoke City og niðurstaðan var 3-1 sigur heimamanna í Stoke.

Chris Brunt mætti skiljanlega svekktur í viðtal eftir leikinn þar sem hann talið um hversu erfitt væri að rífa sig upp úr stöðunni sem þeir eru í.

„Þegar þetta gengur svona eins og þetta gengur hjá okkur núna þessa dagana þá er virkilega erfitt að ná að rífa sig upp úr því," Brunt vísaði þar í slæman árangur liðsins.

„Okkur skortir augljóslega sjálfstraust, stuðningsmennirnir borguðu væna upphæð til að koma og styðja okkur, þeir hafa sinn rétt á að láta í sér heyra þegar það gengur svona."

„Vonandi getum við snúið þessu við sem fyrst, við höfum oft spilað verr en þetta á tímabilinu og fengið stig," sagði Chris Brunt að lokum.

West Brom er í 19. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og þeir fá næst Everton í heimsókn á öðrum degi jóla.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner