Tottenham heimsótti Burnley í síðdegisleik ensku úrvalsdeildarinnar þar sem gestirnir höfðu betur 0-3.
Það var engin spurning um hver væri maður leiksins því enski landsliðsmaðurinn Harry Kane skoraði þrennu.
Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn fyrir Burnley í dag og fær fimmu fyrir frammistöðu sína.
Besti maður Burnley í leiknum var að mati Sky Sports, Belginn Steven Defour.
Einkunnir Burnley: Pope (5), Taylor (5), Mee (5), Bardsley (5), Long (4), Cork (5), Hendrick (5), Defour (6), Jóhann Berg (5), Arfield (5), Wood (5).
Varamenn: Vokes (5), Barnes (5).
Einkunnir Tottenham: Lloris (7), Vertonghen (7), Sanchez (7), Dier (7), Aurier (7), Davies (7), Son (7), Eriksen (7), Alli (8), Sissoko (7), Kane (9).
Varamenn: Lamela (6), Llorente (6), Dembele (6)
Maður leiksins: Harry Kane
Athugasemdir