Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 23. desember 2017 19:39
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ítalía: Atalanta heimsótti AC Milan og tók stigin þrjú
Mynd: Getty Images
AC Milan 0 - 2 Atalanta
0-1 Bryan Cristante ('32 )
0-2 Josip Ilicic ('71 )

AC Milan og Atalanta mættust í síðdegisleik ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Gestirnir í Atalanta tóku stigin þrjú, en niðurstaðan var 0-2 sigur þeirra.

Bryan Cristante kom Atalanta yfir í fyrri hálfleik og þannig var staðan þegar dómari leiksins flautaði til loka fyrri hálfleiks.

Það var svo Josip Ilicic sem gulltryggði sigur Atalanta þegar tæpar tuttugu mínútur voru eftir af leiknum.

Atalanta fór í sjöunda sæti deildarinnar með sigrinum en AC Milan er hins vegar í 11. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 32 16 7 9 57 38 +19 55
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 32 4 16 12 30 48 -18 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner