Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. desember 2017 17:37
Ívan Guðjón Baldursson
Pep: Heppnir að komast yfir - Aguero er goðsögn
Mynd: Getty Images
Manchester City var rétt í þessu að valta yfir Bournemouth með fjórum mörkum gegn engu.

Pep Guardiola var kátur að leikslokum og telur sína menn heppna að skora fyrsta markið.

„Þetta var rosalega erfiður leikur því þeir spila með fimm manna varnarlínu og tíu menn fyrir aftan boltann," sagði Guardiola.

„Það var ómögulegt að finna pláss og við vorum heppnir að skora fyrsta markið. Síðustu 20 mínúturnar færðu þeir sig hærra á völlinn og þá gátum við spilað okkar leik."

Sergio Aguero fékk að spila allan leikinn eftir mikla fjölmiðlaumfjöllun um viðbrögð hans þegar hann var tekinn útaf fyrir Gabriel Jesus í síðasta leik.

„Það leikur enginn vafi á því að Aguero sé einstakur leikmaður. Hann er goðsögn og öllum líður vel þegar hann spilar vel og skorar mörk. Ég veit að öllum leikmönnum finnst gaman að spila, það er erfitt að gera öllum til geðs þegar allir eru að spila vel. Það er einfaldlega ekki nóg pláss í liðinu."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner