Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 23. desember 2017 21:22
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Pochettino: Það er erfitt að finna orð til að lýsa Harry Kane
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino var að sjálfsögðu á hliðarlínunni í dag þegar hans menn í Tottenham heimsóttu Burnley og sigruðu örugglega 0-3.

Pochettino mætti skiljanlega virkilega sáttur í viðtal eftir sigurinn og byrjaði á að hrósa Harry Kane sem skoraði þrennu í leiknum.

„Áður en ég segi meira þá verð ég að óska Harry Kane til hamingju með afraksturinn í dag, og svo að liðinu, þeir voru frábærir, þeir þurftu einmitt á svona sigri að halda núna."

„Það er erfitt að finna orð til að lýsa Harry Kane, á tíma mínum hjá Tottenham hefur hann sífellt verið að koma mér á óvart. Það var gott fyrir hann að skora þrennu en við hefðum hins vegar getað skorað meira en þrjú mörk," sagði Mauricio Pochettino.

Tottenham er nú komið í fimmta sæti deildarinnar en þeir mæta næst Southampton á öðrum degi jóla.


Athugasemdir
banner
banner
banner