Rétt í þessu var flautað til leiksloka í leik Fílabeinsstrandarinnar og Malí sem endaði með 1-1 jafntefli en allir þrír leikir riðilsins hafa endað þannig. Kamerún og Gínea eigast við í riðlinum klukkan 19.
Leikið var í C-riðlinum í gær þar sem Gana vann Alsír en bæði lið eru með þrjú stig. Senegal er á toppi riðilsins með fjögur stig eftir jafntefli gegn Suður-Afríku sem er á botni riðilsins með eitt stig.
C-riðill:
Gana 1 - 0 Alsír
1-0 Asamoah Gyan ('90)
Suður-Afríka 1 - 1 Senegal
1-0 Matthews Oupa Manyisa ('47)
1-1 Kara Mbodji ('60)
D-riðill:
Fílabeinsströndin 1 - 1 Malí
0-1 Bakary Sako ('7)
1-1 Max-Alain Gradel ('87)
Athugasemdir