Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 24. janúar 2015 16:00
Arnar Geir Halldórsson
Birkir Bjarna skoraði annan leikinn í röð
Birkir Bjarnason
Birkir Bjarnason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Bjarnason fer vel af stað á nýju ári en hann skoraði eina mark Pescara í ítölsku B-deildinni í dag.

Birkir var einnig á skotskónum um síðustu helgi þegar liðið vann góðan 4-2 sigur. Það fór þó ekki jafn vel í dag því mark Birkis dugði skammt þegar Ternana kom í heimsókn en lokatölur urðu 2-1, gestunum í vil.

Pescara er í harðri baráttu um umspilssæti en sæti 3-8 fara í umspil um sæti í Serie A og situr Pescara í 8.sæti með 31 stig.

Þetta var þriðja mark Birkis á leiktíðinni en hann er í lykilhutverki hjá liðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner