Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 24. janúar 2015 19:21
Elvar Geir Magnússon
Enski bikarinn: Eiði tókst ekki að skora frekar en öðrum á Anfield
Mynd: Getty Images
Liverpool 0 - 0 Bolton

Liverpool og Bolton gerðu markalaust jafntefli á Anfield í kvöld en liðin þurfa að mætast aftur á Macron leikvanginum til að skera úr um hvort liðið komist áfram í bikarnum.

Eiður Smári Guðjohnsen fékk tvö fín færi í leiknum en tókst ekki að skora frekar en öðrum leikmönnum á Anfield. Eiður lék allan leikinn fyrir Bolton.

Emile Heskey var einnig í byrjunarliði Bolton en fór af velli snemma í seinni hálfleik eftir að hafa lítið látið að sér kveða.

Fabio Borini átti hættulegan skalla í uppbótartíma en boltinn fór naumlega framhjá. Þá fékk Jordan Henderson einnig fínt færi í teignum en hitti boltann illa.
Athugasemdir
banner
banner
banner