Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 24. janúar 2015 00:32
Magnús Már Einarsson
Fótbolta.net mótið: Grótta tryggði sér sigur í lokin
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Grótta 3 - 2 Afturelding
0-1 Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban
1-1 Sjálfsmark
1-2 Birkir Þór Guðmundsson
2-2 Markús Andri Sigurðsson
2-3 Dagur Guðjónsson

Grótta sigraði Aftureldingu 3-2 í B-deild Fótbolta.net mótsins í kvöld en leikið var við erfiðar aðstæður á Seltjarnarnesi.

Snjór var á vellinum og mikill vindur á annað markið. Mosfellingar voru með vindinn í bakið í fyrri hálfleik og leiddu í leikhléi.

Í síðari hálfleiknum voru heimamenn með vindinn í bakið og þeir jöfnuðu þegar nokkrar mínútur voru eftir.

Í viðbótartíma náðu Gróttumenn síðan að tryggja sér sigurinn þegar varamaðurinn ungi Dagur Guðjónsson skoraði.
Athugasemdir
banner
banner