Íslenskur tippari hefði unnið 210 milljónir ef Liverpool hefði náð að vinna Bolton í enska bikarnum en leiknum lauk með markalausu jafntefli.
Ef Liverpool hefði unnið leikinn hefði tipparinn verið með alla þrettán leikina á enska getraunaseðlinum rétta og fengið milljónirnar 210 í vinning.
Nútíminn fjallar um málið.
Tipparinn var þegar búinn að ná ótrúlegum úrslitum en bæði Manchester City og Chelsea töpuðu sínum leikjum mjög óvænt.
Athugasemdir