banner
   lau 24. janúar 2015 18:13
Elvar Geir Magnússon
Mourinho: Til skammar að tapa þessu
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
„Á þessum tímapunkti samgleðst ég Bradford," sagði Jose Mourinho, stjóri Chelsea, eftir afar óvænt tap 4-2 gegn Bradford í enska bikarnum í dag. Chelsea komst í 2-0 í leiknum en svo hrundi allt.

„Á hinn bóginn þá skammast ég mín og finnst ða leikmenn ættu að finna sömu tilfinningu. Vissulega er þetta fegurðin við FA-bikarinn, svona gerist oftar þar en í öðrum löndum."

„Ég sagði fyrir leikinn að það væri til skammar ef við myndum tapa. Ég endurtek þau orð."

Eftir leikinn fór Mourinho í klefann hjá Bradford og tók í hendur allra leikmanna og starfsmanna og óskaði þeim til hamingju með sigurinn.

„Ég sé ekki eftir neinu sem ég gerði. Ég vann mitt starf af heilum hug. Ég undirbjó mína menn vel og sagði þeim hvað gæti gerst."
Athugasemdir
banner
banner
banner