Amoory Abdulrahman, leikmaður sameinuðu furstaríkjanna, skoraði magnað mark í vítaspyrnukeppni 8-liða úrslitum Asíukeppninnar en hann bauð þá upp á Panenka vítaspyrnu.
Amoory hefur verið einn besti leikmaður Asíukeppninnar til þessa en hann fullkomnaði það með því að bjóða upp á skemmtilega vítaspyrnu í vítaspyrnukeppni gegn Japan.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan en sameinuðu furstaríkin komust áfram 4-5 í vítaspyrnukeppninni.
Athugasemdir