Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. janúar 2015 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Stjóri Cambridge: Augljóslega mjög stoltur
Úr leiknum í gær
Úr leiknum í gær
Mynd: Getty Images
Richard Money, knattspyrnustjóri Cambridge United, var í skýjunum með markalausa jafnteflið sem liðið gerði við Manchester United í FA-bikarnum í gær.

Markvörður Cambridge og vörn liðsins átti magnaðan leik gegn Man Utd en gestirnir voru í vandræðum með að opna liðið.

Money var ánægður með leik sinna manna en liðin þurfa að mætast aftur og að þessu sinni á Old Trafford.

,,Ég er augljóslega mjög stoltur og núna munum við fara á Old Trafford þar sem við ætlum að njóta þess að spila," sagði Money.

,,Markvörðurinn og öftustu fjóru voru magnaðir. Þið sjáið hvað þetta þýðir fyrir alla hérna en núna ætlum við að halda á hótelið í borginni og hitta fjölskyldur okkar í leiðinni. Félagið er búið að skipuleggja hlaðborð fyrir okkur og þar fáum við okkur kannski einn eða tvo drykki í tilefni þess," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner