Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   mið 24. janúar 2018 19:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hjörtur Logi: Mér finnst gaman að prófa
Hjörtur er kominn aftur í FH.
Hjörtur er kominn aftur í FH.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
„Það er frábært að vera kominn aftur heim og í liðið mitt," sagði Hjörtur Logi Valgarðsson, varnarmaður FH, eftir 3-1 sigur á Keflavík í Fótbolta.net mótinu í dag.

Hjörtur Logi er kominn aftur í FH eftir að hafa verið úti í atvinnumennsku frá árinu 2011.

„Það er svolítið mikið af nýjum mönnum og það er nýr þjálfari. Þetta er allt öðruvísi en þegar maður var hérna síðast. Það er spennandi að taka þátt í þessu."

Þetta var fyrsti sigur FH á þessu undirbúningstímabili, fyrsti sigurinn frá því í september á síðasta ári!

„Við erum enn að reyna að finna taktinn og það sést. Við erum að vinna í þessum hlutum daglega þannig að það hljóta að fara að detta inn fleiri sigrar, og við verðum betur samspilaðir. Það var gott að ná inn sigri og við getum aðeins byggt á því."

Hjörtur er að upplagi vinstri bakvörður en hann hefur verið að spila sem hafsent á þessu undirbúningstímabili.

„Það er fínt, það er alveg nýtt fyrir mér. Mér finnst gaman að fá að prófa," sagði Hjörtur.

„Ég á mikið ólært enda hef ég verið vinstri bakvörður alla mína tíð En ég tel mig hafa kosti sem henta vel í miðvörðinn líka. Það er mjög fínt að spila miðvörðinn eins og er, það eru ekki eins mörg hlaup."

Viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner