Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. febrúar 2018 16:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Watford og Everton: Aftur byrja Rooney og Gylfi
Mynd: Getty Images
Gylfi Sigurðsson er á sínum stað í byrjunarlið Everton sem sækir Watford heim í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta er lokaleikur dagsins í deild þeirra bestu á Englandi.

Gylfi og félagar hafa verið í fríi í tvær vikur og skellti liðið sér til Dúbaí í æfingabúðir. Sam Allardyce segir að engar afsakanir séu lengur í boði fyrir leikmenn sína.

Athygli vekur að Gylfi og Wayne Rooney eru að byrja saman annan leikinn í röð þrátt fyrir að Allardyce, Stóri Sam, hafi talað um að það virki ekki að spila með þá saman.

Það virkaði nú ágætlega í síðasta leik gegn Crystal Palace þar sem Everton vann 3-1 og Gylfi skoraði.

Hér að neðan eru byrjunarliðin fyrir leikinn á eftir:





Athugasemdir
banner
banner
banner