Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 24. febrúar 2018 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Minningarmót Ragnars Margeirssonar í dag
Ragnar Aron Ragnarsson sonur Ragnars Margeirssonar að loknu einu Ragnarsmótinu.
Ragnar Aron Ragnarsson sonur Ragnars Margeirssonar að loknu einu Ragnarsmótinu.
Mynd: Aðsend
Hið árlega minningarmót um Ragnar Margeirsson, sem lék m.a. með Keflavík, KR og Fram, verður haldið í Reykjaneshöll í dag.

Mót þetta hefur verið vel sótt undanfarin ár og mikil ánægja verið á meðal eldri drengja, sem hafa sótt mótið. Aðstandendur viðburðarins, sem kalla sig „vinir Ragga Margeirs“ hafa tekið upp þann sið að safna fé og láta afraksturinn ganga til góðs málefnis.

Þetta verður í fjórtánda sinn sem komið er saman til að minnast Ragnars Margeirssonar, fyrrverandi knattspyrnusnillings, en hann lést langt fyrir aldur fram í febrúar á árinu 2002.

Vinir Ragga Margeirs bjóða öllum að koma við í Reykjaneshöllinni á laugardaginn og fylgjast með fyrrverandi knattspyrnusnillingum leika listir sínar og eiga saman góða stund. Mótið hefst kl. 15:30 og lýkur um kl. 18:00.

- Leikið verður á 4 litlum völlum (50 x 32) í tveimur deildum, 35 ára flokkur og 50+ flokkur.
- Leikmannafjöldi: 6 í liði (5 útileikmenn og markvörður)
- Að móti loknu verður verðlaunaafhending ásamt því sem boðið verður upp á léttar veitingar

Þeir sem vilja láta fé af hendi rakna af þessu tilefni og styrkja gott málefni, geta gert það með því að leggja inná reikning nr. 121-05-10026, kt. 180161-4229.

Smelltu hér til að sjá leikkskrá mótsins á vef Keflavíkur

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner