Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 24. mars 2016 14:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Adam Johnson dæmdur í sex ára fangelsi (Staðfest)
Adam Johnson fer í sex ára fangelsi
Adam Johnson fer í sex ára fangelsi
Mynd: Getty Images
Búið er að dæma Adam Johnson, fyrrverandi leikmann Sunderland, í sex ára fangelsi fyrir barnaníð.

Johnson var rekinn frá Sunderland eftir að hann viðurkenndi það að hafa kysst stúlku undir lögaldri í fyrra.

Stúlkan var aðeins 15 ára gömul, en hún mætti reglulega á leiki hjá Sunderland og var mikill aðdáandi Johnson.

Johnson byrjaði að spjalla við hana og þau hittust í Range Rover bifreið hans í janúar í fyrra.

Réttarhöldin fóru fram í dag og var Johnson fundinn sekur um að hafa snert stelpuna á kynferðislegan máta.

Hann var hins vegar sýknaður af annari ákæru, en hann þarf einnig að greiða 50 þúsund pund í sekt fyrir atvikið.
Athugasemdir
banner
banner
banner