Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 24. mars 2016 16:52
Elvar Geir Magnússon
Aron Jóhannsson spilar ekki meira á tímabilinu
Aron á góðri stundu.
Aron á góðri stundu.
Mynd: Getty Images
Aron Jóhannsson, framherji Werder Bremen og bandaríska landsliðsins, spilar að öllum líkindum ekki meira á tímabilinu. Hann hefur verið frá vegna meiðsla í nára síðan í september.

Werder Bremen segist ekki búast við honum aftur á völlinn fyrr en næsta tímabil.

„Við höfum lagt árar í bát varðandi það að Aron spili meira á þessu tímabili," sagði Thomas Echin, yfirmaður íþróttamála hjá Brimarbúum.

Aron kom til Werder Bremen síðasta sumar og skoraði tvö mörk í fyrstu sex leikjum sínum fyrir liðið.

Werder Bremen er aðeins einu stigi fyrir ofan fallsæti í þýsku bundesligunni.
Athugasemdir
banner