„Þetta eru mjög sterk lið sem við fáum að æfa okkur á móti. Það verður flott að spila á móti sterkum liðum fyrir þetta mót," sagði Birkir Bjarnason við Fótbolta.net í gær aðspurður út í komandi vináttuleiki gegn Dönum og Grikkjum.
Birkir verður í eldlínunni gegn Dönum í kvöld en hann er kominn á fulla ferð eftir að hafa handleggsbrotnað á dögunum.
Birkir verður í eldlínunni gegn Dönum í kvöld en hann er kominn á fulla ferð eftir að hafa handleggsbrotnað á dögunum.
„Hendin er fín. Það er búið að vefja þetta og þetta háir mér ekki sérstaklega," sagði Birkir sem var í liði Basel sem tapaði 3-0 gegn Sevilla í Evrópudeildinni í síðustu viku eftir markalaust jafntefli vikuna áður.
„Fyrri leikurinn var mjög góður hjá okkur. Seinni leikurinn var ekki nógu góður og þeir voru sterkari en við. Það var sanngjarnt að þeir fóru áfram."
Basel er með 14 stiga forskot á toppnum í Sviss og titillinn blasir við liðinu. „Við erum með mjög góðan og sterkan hóp. Við höldum bara áfram þar til að við klárum þetta," sagði Birkir en hann segir að yfirburðir liðsins komi sér í opna skjöldu.
„Ég hélt að það væri ekki svona mikill munur á liðunum. Við erum með mjög sterkt lið og erum einfaldlega miklu betri en hinir," sagði Birkir en hann er ánægður með frammistöðu sína á tímabilinu.
„Ég er mjög ánægður. Þetta er fyrsta tímabilið mitt þarna en ég er ánægður með formið og mína stöðu."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir