Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 24. mars 2016 10:00
Magnús Már Einarsson
Skrifar frá Herning
Kolbeinn: Frakkarnir eru spenntir fyrir þessu
Borgun
Kolbeinn á æfingu í Herning í gær.
Kolbeinn á æfingu í Herning í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er kominn smá fiðringur í magann. Það er mikil spenna og mikil tilhlökkun," segir Kolbeinn Sigþórsson um EM í Frakklandi í sumar.

Kolbeinn verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu gegn Danmörku í Herning í kvöld en um er að ræða einn af síðustu vináttuleikjunum fyrir EM. Kolbeinn spilar með Nantes í Frakklandi en þar er spennan að aukast fyrir EM í sumar.

„Ég finn að þeir eru byrjaðir að tala aðeins meira um mótið. Þeir eru alltaf að spyrja hvernig undirbúningur er hjá okkur og hvort við séum ekki klárir í þetta. Maður finnur að Frakkarnir eru spenntir fyrir þessu," sagði Kolbeinn en hann segist

„Ég er í fínu formi og sáttur fyrir utan það að ég væri til í að skora fleiri mörk. Ég náði að setja nokkur mörk í byrjun árs og vonandi kemst ég aftur í þann gír. Ég finn að ég er í toppformi og mér líður vel svo ég býst við að þetta komi aftur."

Nantes er í 8. sæti í frönsk úrvalsdeildinni í augnablikinu. Titilbaráttan er ekki spennandi í Frakklandi en PSG tryggði sér tititlinn á dögunum.

„Þeir eru með langbesta liðið þarna. Þegar við spiluðum við þá vorum við nálægt því að vinna en þeirr tóku okkur á reynslunni og gæðunum. Þeir eru langbesta liðið og það eru engin önnur lið nálægt þeim í gæðum. Þeir eru ótrúlegt en satt orðnir meistarar nú þegar. Ég býst líka við að þeir fari alla leið í Meistaradeildinni. Þeir eiga mjög góðan séns á að klára hana líka," sagði Kolbeinn.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner