Ögmundur Kristinsson, markvörður Hammarby, segir að Svíar séu orðnir mjög spenntir fyrir EM í sumar.
„Hver einasta spurning sem maður fær frá fjölmiðlum er um EM og Lars og þeir eru mjög spenntir fyrir þessu," sagði Ögmundur við Fótbolta.net í gær.
Ögmundur hefur staðið talsvert á milli stanganna í fjarveru Hannesar Halldórssonar. Ögmundur varði markið gegn Tyrkjum, Póllandi, Slóvakíu og Bandaríkjunum.

„Það er alltaf gott að fá traustið frá þjálfurunum. Maður verður að standa sig vel með félagsliðinu og gera eins vel og maður getur á æfingum og sýna að maður eigi heima hérna," sagði Ögmundur.
„Í Tyrklandi fannst mér frammistaðan mjög góð. Það var heilt yfir solid leikur. Síðan Í nóvember komu tveir leikir sem voru ekki nógu góðir, ég viðurkenni það fúslega. Í janúar var leiðinlegt að fá sig þrju mörk og tapa en það var ekki hægt að klaga mikið yfir því."
Ögmundur var hetja Hammarby í vítaspyrnukeppni gegn AIK í sænska bikarnum fyrr í mánuðinum en hann skoraði sigurmarkið þar.
„Maður var óvenju kærulaus. Ég hugsaði ekki neitt og ákvað bara að lúðra þessu á markið," sagði Ögmundur en mikil gleði var hjá stuðningsmönnum Hammarby með sigurinn þar sem rígurinn við AIK er rosalegur.
„Þetta skiptir máli fyrir marga í Stokkhólmi og stuðningsmennirnir voru ánægðir. Það er mikill hiti í mönnum og slagsmál í lestunum á leiðinni til og frá vellinum. Það er mikið stuð," sagði Ögmundur.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir