Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 24. mars 2016 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Sjáðu mörkin: KR rúllaði yfir ÍA
Hólmbert kom KR-ingum á bragðið
Hólmbert kom KR-ingum á bragðið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR-ingar unnu öruggan sigur á Skagamönnum í Lengjubikarnum í gærkvöldi þegar þessi stórveldi mættust í Akraneshöllinni.

Hólmbert Aron Friðjónsson kom KR-ingum yfir í fyrri hálfleik og Skagamenn þurftu að leika manni færri allan seinni hálfleikinn eftir að Ólafur Valur Valdimarsson fékk rauða spjaldið.

KR-ingar nýttu sér liðsmuninn og keyrðu yfir heimamenn en lokatölur urðu 4-0.

Leikurinn var sýndur beint á Stöð 2 Sport 2 og hefur Vísir tekið saman myndband með mörkum leiksins.

Smelltu hér til að sjá mörk KR gegn ÍA
Athugasemdir
banner
banner
banner