Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fös 24. mars 2017 22:51
Hafliði Breiðfjörð
Shkoder, Albaníu
Gylfi: Oft sætara að vinna svona
Icelandair
Gylfi í baráttunni í leiknum í kvöld.
Gylfi í baráttunni í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við vissum það fyrir leikinn að þeir yrðu nokkuð erfiðari og þeir voru aðeins erfiðari en við bjuggumst við fyrstu 20-25 mínúturnar," sagði Gylfi Þór Sigurðsson miðjumaður Íslands eftir 1-2 sigur á Kosovo í Albaníu í kvöld.

Lestu um leikinn: Kosóvó 1 -  2 Ísland

„Við hefðum getað pressað þá aðeins betur varnarlega, en eftir að við skoruðum byrjuðum við að spila aðeins betur en hefðum getað gert betur. Svo kom klaufalegt mark í seinni hálfleik sem bauð upp á óþarfa pressu."

Með sigrinum er ljóst að Ísland getur jafnað Krótaíu að stigum á toppi riðilsins þegar liðin mætast í júní.

„Það eina sem skipti máli var að fá þrjú stig. Hvort það hefði verið að spila góðan fótbolta og vinna 3-4 núll, eða að vinna svona eins og í dag, það er oft sætara að vinna svona. En þetta býr til skemmtilegan leik á móti Króatíu í júní."

Gylfi skoraði annað mark Íslands úr vítaspyrnu en var komin spenna í hann í aðdraganda spyrnunnar? „Þetta var óþarflega langur tími því það var eitthvað riflildi fyrir utan boxið, en ég náði að einbeita mér að því að hitta markið og sem betur fer fór hann í vitlaust horn."

Síðustu mínúturnar reyndi íslenska liðið að halda boltanum í hornunum á vellinum og lítið gerðist.

„Þeir negldu alltaf fram á stóra framherjann og það gekk ágætlega hjá þeim, við vorum í basli með það. Þeir voru nokkuð góðir að pikka upp seinni boltana. Þegar við fengum boltann þá reyndum við að fara í hornin og tefja leikinn. Láta klukkuna líða, það gekk ágætlega þó við hefðu nokkrum sinnum geta gert það aðeins betur. Það sýnir reynslu í liðinu að vera ekkert að krossa hann beint á markmanninn og fá skyndisókn á móti okkur. Við náðum að drepa leikinn."

Nánar er rætt við Gylfa í sjónvarpinu að ofan.


Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner
banner