Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fös 24. mars 2017 22:54
Elvar Geir Magnússon
Shkoder, Albaníu
Helgi Kolviðs: Allir hagnast á að hafa Gylfa í liðinu
Icelandair
Helgi á hliðarlínunni í kvöld.
Helgi á hliðarlínunni í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland náði í öll stigin til Albaníu þegar liðið vann 2-1 útisigur gegn Kosóvó í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Helga Kolviðsson, aðstoðarþjálfara Íslands, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Kosóvó 1 -  2 Ísland

„Við vissum að þetta yrði erfitt og sú varð raunin. Við fengum pressuna á okkur í byrjun seinni hálfleiks og þeir efldust við að skora mark. Það kom okkur ekki á óvart að þetta var erfitt en mikilvægast var að við náðum þremur stigum," sagði Helgi.

Helgi var spurður út í þá ákvörðun að láta Björn Bergmann byrja en geyma Jón Daða á bekknum.

„Við vorum þrjá daga á Ítalíu og þar voru allir jafnir. Það var okkar ákvörðun að byrja leikinn svona. Það er alltaf gott að hafa Jón Daða í bakhöndinni að koma inná og það sást í seinni hálfleik hversu mikilvægur hann var. Hann vinnur svo mikið að það létti pressuna."

Helgi tók undir að það væru forréttindi fyrir Ísland að hafa leikmann eins og Gylfi er.

„Hann er að spila frábærlega með sínu liði og hann kemur með það inn í landsliðið líka, þar á meðal á æfingar. Það hagnast allir á því."

Viðtalið er í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner