Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fös 24. mars 2017 22:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Viðar Örn: Maður hefði viljað gera aðeins betur
Icelandair
Viðar Örn í leiknum í kvöld.
Viðar Örn í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Maður hefði viljað skora og gera aðeins betur, en mér fannst ég gera ágætlega úr því sem ég fékk. Ég er ágælega sáttur með minn leik, en að sjálfsögðu hefði ég getað gert betur," sagði sóknarmaðurinn Viðar Örn Kjartansson um sína frammistöðu eftir 2-1 sigur á Kosóvó í undankeppni HM í kvöld.

Viðar Örn fékk tækifæri í byrjunarliðinu og byrjaði fremstur með Birni Bergmanni Sigurðarsyni, sem tókst að skora, en Viðar var sáttur með að fá þrjú stig úr leiknum.

Lestu um leikinn: Kosóvó 1 -  2 Ísland

„Við byrjuðum ekki alveg nógu vel og það var mikill kraftur í þeim. Þeir töluðu um að við værum með hávaxnara lið, en þeir voru bara með stóra og sterka menn," sagði Viðar við Fótbolta.net eftir leik.

„Þetta var alls ekki létt í byrjun, en svo komumst við í 2-0 og erum kannski smá kærulausir í seinni hálfleik. Þriðja markið hjá okkur hefði gert út um leikinn, en við hleyptum þeim inn í þetta og úr varð leikur."

Viðar segir að það hafi verið erfitt að mæta Kosóvó, sem er nýtt aðildarríki innan FIFA. Þeir eru að ná í marga nýja leikmenn og að sögn Viðar munu þeir fara hratt upp FIFA-listann fræga.

„Þeir eiga eftir að fara hratt upp FIFA-listann. Það er mjög erfitt að spila á móti þeim á útivelli og maður sá að þeir gáfu gjörsamlega allt í þetta."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner