Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   lau 24. mars 2018 05:31
Elvar Geir Magnússon
Santa Clara
Albert Guðmunds: Krefst þess af mér að gera meira sóknarlega
Icelandair
Albert í leiknum.
Albert í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Guðmundsson lék fyrri hálfleikinn í tapinu gegn Mexíkó.

Var hann ekki ánægður þegar Heimir tilkynnti honum að hann myndi byrja leikinn?

Lestu um leikinn: Mexíkó 3 -  0 Ísland

„Þetta er mikill heiður og skemmtilegt að spila svona leik á flottum velli gegn flottu liði. Ég hef ekki spilað áður fyrir framan svona marga," segir Albert en 68 þúsund manns voru á vellinum.

Hvernig fannst þér takast til, ertu ánægður með þína frammistöðu?

„Á köflum. Mér fannst ég komast ágætlega inn í varnarkerfið en hefði mátt gera meira sóknarlega. Ég krefst þess af sjálfum mér að gera meira sóknarlega. Það mega því aðrir krefjast þess að ég geri meira."

Albert spilar ekki leikinn gegn Perú en hann er að fara í verkefni með U21-landsliðinu.

„Næsta sem ég fókusa á er U21 og svo geri ég mína vinnu fyrir PSV. Svo er bara að sjá og vona hvað Heimir velur," segir Albert um það þegar HM lokahópurinn verður valinn.

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner