Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. mars 2018 12:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Umbinn sér Bellerin ekki fara frá Arsenal
Mynd: Getty Images
Umboðsmaður Hector Bellerin segir að leikmaðurinn sé ánægður í herbúðum Arsenal og það sé ansi ólíklegt að hann sé á förum í eitthvað annað félag í sumar.

Þrátt fyrir að hafa skrifað nýlega undir samning til 2023 við Arsenal hefur Bellerin verið orðaður við Juventus og Manchester United í breskum og öðrum erlendum fjölmiðlum.

En umboðsmaður hans, Albert Botines, segist ekki sjá það fyrir sér að Bellerin spili með öðru liði á næsta tímabili.

„Það hefur enginn haft samband við mig varðandi Bellerin," sagði hann við ítölsku útvarpsstöðina CRC.

„Hann er ánægður, hann endurnýjaði samning sinn nýlega og er að spila reglulega. Ég sé hann ekki fara frá Arsenal."
Athugasemdir
banner
banner
banner