Lionel Messi hjá Barcelona mun ekki finna annað félag í líkingu við Barcelona ef hann ákveður að yfirgefa spænska félagið en þessu heldur liðsfélagi hans, Andrés Iniesta, fram við fjölmiðla.
Argentínski snillingurinn hefur mikið verið gagnrýndur á þessari leiktíð fyrir frammistöðu hans en hún hefur ekki þótt fullnægjandi.
Barcelona hefur verið að missa úr í titilbaráttunni og þá er liðið úr svo gott sem öllum keppnum en margir hafa sett þá ábyrgð á herðar Messi.
Talið er að Messi yfirgefi Barcelona í sumar en spænskir fjölmiðlar griena frá því að hann sé óánægður með samning sinn hjá Börsungum. Iniesta varar þó Messi við og segir að grasið sé ekki grænna hinum megin.
;,Barcelona mun aldrei aftur vera með leikmann á borð við Messi en Messi mun heldur aldrei finna félag í líkingu við Barcelona. Ég vona því að hann ljúki ferlinum hjá Barcelona," sagði Iniesta.
Athugasemdir