banner
   fim 24. apríl 2014 10:22
Elvar Geir Magnússon
Myndir: Glæsilegar endurbætur á Anfield
Mynd: Liverpool
Það er allt í blóma hjá Liverpool þessa dagana en félagið hefur nú opinberað tölvuteiknaðar myndir af því hvernig áætlað er að heimavöllur félagsins, Anfield, muni líta út eftir breytingar.

Ekki er búið að samþykkja teikningarnar en Liverpool vonast til að hrinda framkvæmdum af stað sem fyrst. Eftir breytingarnar myndi völlurinn taka 58 þúsund áhorfendur.

Það þyrfti að rífa mörg hús sem eru upp við leikvanginn í dag en hann tekur í dag rúmlega 45 þúsund áhorfendur.
Athugasemdir
banner
banner
banner