Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. apríl 2015 11:30
Elvar Geir Magnússon
Abdennour orðaður við Arsenal og Tottenham
Abdennour í baráttunni.
Abdennour í baráttunni.
Mynd: Getty Images
Lundúnafélögin Arsenal og Tottenham hafa áhuga á varnarmanninum Aymen Abdennour frá Túnis. Þessi mikils metni varnarmaður Monaco hefur verið undir smásjá Arsenal í nokkurn tíma. Þetta segir umboðsmaður hans.

Þá er sagt að stór félög á Spáni og Ítalíu hafi einnig áhuga þessum 25 ára leikmanni sem er samningsbundinn Monaco til 2019.

„Ég tel hann hafa sannað það að hann er einn besti leikmaðurinn í sinni stöðu í Evrópu. Hann er bara 25 ára og félög fylgjast grannt með honum. PSG þar á meðal. Þetta er þó ekki komið á viðræðustig," segir umboðsmaðurinn.

Fróðlegt verður að sjá hvort eitthvað gerist í málum leikmannsins í sumar.
Athugasemdir
banner
banner