Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. apríl 2015 19:35
Brynjar Ingi Erluson
Barzagli ekki byrjaður að hugsa um Ronaldo
Mynd: Getty Images
Andrea Barzagli, leikmaður Juventus á Ítalíu, er ekki farinn að spá í einvíginu gegn Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Juventus mætir Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu en þessi lið mættust einmitt á þessum stað í keppninni fyrir tólf árum síðan.

Barzagli verður væntanlega í vörninni hjá Juventus en hann mun mæta besta leikmanni heims, Cristiano Ronaldo.

„Ég er ekki byrjaður að spá í honum. Við verðum að hugsa um Torino fyrst," sagði Barzagli.
Athugasemdir
banner
banner
banner