Iain James Williamson, leikmaður Vals í Pepsi-deild karla, hefur framlengt samning sinn til næstu tveggja ára en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í kvöld.
Iain, sem er 27 ára gamall miðjumaður, hefur leikið 32 leiki með Valsmönnum og gert tvö mörk í þeim leikjum.
Hann hefur verið magnaður með liðinu frá því hann kom en hefur þó verið að glíma við meiðsli að undanförnu.
Hann fór í aðgerðir á mjöðm í lok árs 2014 og hefur verið í endurhæfingu í vetur en hann lék með liðinu í Lengjubikarnum þar sem hann lék tvo leiki.
Hér fyrir neðan má svo sjá viðtal við Williamson sem birt var á heimasíðu Vals.
Athugasemdir