Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. apríl 2015 15:10
Elvar Geir Magnússon
Kári og félagar missa þrjú stig - Einu stigi frá fallsæti
Kári Árnason í landsleik í Lettlandi.
Kári Árnason í landsleik í Lettlandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrjú stig hafa verið dregin af Rotherham United í ensku Championship-deildinni og félagið sektað um 30 þúsund pund fyrir að tefla fram ólglegum leikmanni.

Íslenski landsliðsmaðurinn Kári Árnason leikur fyrir Rotherham.

Rotherham spilaði á varnarmanninum Farrend Rawson, lánsmanni frá Derby, degi eftir að lánssamningurinn rann út. Þá vannst 1-0 sigur gegn Brighton.

Eftir að hafa misst þrjú stig er Rotherham einu stigi fyrir ofan fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir.

Rotherham á leik gegn Norwich á morgun en Steve Evans, stjóri Rotherham, segir að örlög liðsins muni ráðast inni á vellinum.
Athugasemdir
banner
banner