Sofia, eiginkona Luis Suarez, hefur opinberað það að úrúgvæski sóknarmaðurinn hefði sagt við sig að hann hefði ekki bitið ítalska varnarmanninn Giorgio Chiellini á HM í Brasilíu.
Suarez viðurkenndi tíu dögum síðar að hann hefði logið og opinberaði þá sannleikann við hana.
Suarez viðurkenndi tíu dögum síðar að hann hefði logið og opinberaði þá sannleikann við hana.
Sjónvarpsupptökur sýndu svo ekki var um villst að Suarez beit Chiellini.
„Hann sagði við mig að hann hefði ekki gert það. Hann þóttist alveg viss og ég fór að trúa þessu. Í sjónvarpinu var ekki talað um annað en bitið og tíu dögum seinna sagði hann mér sannleikann," segir Sofia.
Suarez fékk langt bann en hefur verið á flottu skriði með Barcelona sem setur stefnuna á þrennuna þetta tímabilið.
Athugasemdir