Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 24. apríl 2017 20:00
Magnús Már Einarsson
Draumaliðsdeild Eyjabita - Aron Einar velur sitt lið
Hér er lið Arons.  Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Hér er lið Arons. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Mynd: Draumaliðsdeild Eyjabita
Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Skráning er í fullum gangi í Draumaliðsdeild Fótbolta.net og Eyjabita. Keppni í Pepsi-deild karla hefst á sunnudaginn og hægt er að búa til lið fram að þeim tíma.

Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!

Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, tekur alltaf þátt í Draumaliðsdeildinni og hann hefur skilað inn sínu liði.

Draumalið Arons
Gulli er í markinu auðvitað. Gæinn safnaði stigum fyrir mig í fyrra eins og vanalega. Besti keeperinn í deildinni.

Tók solid vörn. Jobbi er upp og niður, Arnór búinn að djúsa og blogga eins og brjálæðingur í vetur og verður solid, Kassim skilar mörkum úr föstum leikatriðum.

Miðjan er að fara að skila mér stigum. Miðað við hvað Gaui talar góðan leik á fundum þá á hann að taka öll horn, auka og víti. Höskuldur mætir vel krullaður til leiks og byrjar tímabilið með látum. Atli Guðna er solid safnari. Tekur vonandi þjáningardagnsinn í fagni. Sigurður Lár verður solid í ár eins og í fyrra.

Framherjararnir eru smá gamble. Elfar á eftir að pota inn nokkrum fyrir KA. Þessi Tobias er búinn að setja nokkur í vetur og Kristján Flóki er í góðu FH liði sem á eftir að skora mikið af mörkum.

Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!

Sjá einnig:
Draumaliðsdeild Eyjabita - Tómas Þór velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Kristinn Freyr velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Viðar Ari velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Árni Vill velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Aron Þrándar velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Adam Örn velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Kristinn Steindórs velur sitt lið
Athugasemdir
banner
banner
banner