mán 24. apríl 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Leikmaður í Tyrklandi framdi sjálfsvíg
Frantisek Rajtoral.
Frantisek Rajtoral.
Mynd: Getty Images
Tékkneski fótboltamaðurinn Frantisek Rajtoral framdi sjálfsvíg í gær með því að hengja sig. Hinn 31 árs gamli Rajtoral hefur á þessu tímabili leikið með Gaziantepspor í Tyrklandi.

Fyrr á ferlinum lék hann með Banik Ostrava og Viktoria Plzen í heimlandi sínu sem og Hannover í Þýskalandi.

Rajtoral á 14 landsleiki að baki með Tékkum en hann var í hópnum sem komst á EM 2012.

Í gær mætti Rajtoral ekki á æfingu hjá Gaziantepspor og þá var farið að kanna hvar hann væri. Í kjölfarið var farið heim til hans og þar fannst hann látinn.

„Hann virtist ekki eiga við nein vandamál að stríða. Ég veit ekki af hverju hann gerði þetta," sagði Ibrahim Kizil, forseti Gaziantepspor.
Athugasemdir
banner
banner
banner