Garðar var markahæstur í Pepsi-deildinni í fyrra og gaf þátttakendum í Draumaliðsdeildinni fullt af stigum.
Sjötta árið í röð stendur Fótbolti.net fyrir Draumaliðsleik í Pepsi-deild karla. Líkt og í fyrra er harðfiskvinnslan Eyjabiti aðalstyrktaraðili deildarinnar sem rekin er af Fóbolta.net í samstarfi við Íslenskan toppfótbolta eins og síðustu ár.
Skráðu þitt lið til leiks fyrir klukkan 16:00 á sunnudag!
Skráðu þitt lið til leiks fyrir klukkan 16:00 á sunnudag!
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Á síðunni er boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn. Taktu þátt í skemmtilegum leik með vinum og félögum í sumar!
Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.
Athugið að ekki hægt er að nota sama notendanafn og í fyrra. Fólk þarf að skrá sig upp á nýtt í ár.
Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!
Fyrsta umferðin í Pepsi-deildinni fer fram á sunnudaginn en þann dag lokar markaðurinn. Skráðu þitt lið til leiks í tæka tíð!
Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Eyjabiti er aðalstyrktaraðili leiksins í ár. Eyjabiti er harðfiskvinnsla sem er staðsett á Grenivík.
Líkt og í fyrra fær þjálfari stigahæsta liðsins í leiknum fullt af harðfisk í verðlaun frá Eyjabita. Stigahæsta liðið eftir fyrri umferðina fær líka verðlaun auk þess sem Eyjabiti mun gefa stigahæsta liðinu í völdum umferðum í sumar góð verðlaun.
Athugasemdir