Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 24. maí 2013 21:13
Brynjar Ingi Erluson
1. deild: Tvö rauð spjöld og sjö mörk í sigri Víkings á Fjölni
Aron Elís Þrándarson skoraði þrennu fyrir Víking
Aron Elís Þrándarson skoraði þrennu fyrir Víking
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fjölnir 2 - 5 Víkingur R.
0-1 Aron Elís Þrándarson ('19 )
0-2 Hjörtur Júlíus Hjartarson ('20 )
1-2 Ágúst Örn Arnarson ('29 )
1-3 Hjörtur Júlíus Hjartarson ('38 )
1-4 Aron Elís Þrándarson ('64 )
1-5 Aron Elís Þrándarson ('71 )
2-5 Ágúst Örn Arnarson ('90, víti )
Rautt spjald: Guðmundur Karl Guðmundsson ('82, Fjölnir), Tómas Guðmundsson ('90, Víkingur R. )

Víkingur vann magnaðan 5-2 sigur á Fjölni er liðin mættust í fyrstu deild karla á Fjölnisvelli í kvöld.

Aron Elís Þrándarson kom gestunum yfir með þrumuskoti fyrir utan teig áður en Hjörtur Júlíus Hjartarson bætti við öðru marki mínútu síðar eftir laglega fyrirgjöf frá Kristjáni Jóhannesi Magnússyni.

Ágúst Örn Arnarson minnkaði muninn nokkrum mínútum síðar eftir lagleg samspil, en gestirnir þögguðu aftur niður í heimamönnum með þriðja markinu. Þá skoraði Hjörtur eftir sendingu frá Dofra Snorrasyni.

Aron Elís gerði út um leikinn á sjö mínútum í seinni hálfleik. Hann skoraði þá á 64. mínútu er hann komst einn gegn Þórði og kláraði. Þá fullkomnaði hann þrennu sína eftir fyrirgjöf frá Igor Taskovic.

Guðmundur Karl Guðmundsson fékk að líta rauða spjaldið á 82. mínútu í liði Fjölnis eftir brot á Tómasi Guðmundssyni. Fórnarlamb Guðmundar fékk þá sama lit á spjaldi í uppbótartíma er hann braut á Ágústi innan teigs.

Ágúst steik á punktinn sjálfur og skoraði örugglega. Lokatölur 2-5 á Fjölnisvelli og Víkingur því með 6 stig eftir þrjár umferðir, en Fjölnir er með 4 stig eftir jafnmarga leiki.
Slapp
banner
banner