Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 24. maí 2013 13:00
Fótbolti.net
Aron Einar og Atli Eðvalds í útvarpsþættinum á morgun
Lesendur spyrja Aron Einar gegnum Facebook
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður á sínum stað á X-inu FM 97,7 á morgun milli 12 og 14 eins og alla laugardaga.

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, kemur í heimsókn en hann og félagar hans í Cardiff unnu sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili. Lesendur Fótbolta.net geta komið með spurningar á Aron gegnum heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook

Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu fer fram á laugardagkvöld þar sem þýsku liðin FC Bayern og Borussia Dortmund mætast. Atli Eðvaldsson kemur og spáir í spilin fyrir leikinn.

Þá mun Kristján Guðmundsson skoða næstu umferð Pepsi-deildarinnar og Garðar Gunnar Ásgeirsson rýna í 1. deildina.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson. Hægt er að finna þá á Twitter undir @elvargeir og @tomthordarson.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Slapp
banner
banner