Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 24. maí 2013 14:19
Magnús Már Einarsson
Heimild: Metro 
Ashley Williams á leið til Arsenal
Arsenal er við það að ganga frá kaupum á Ashley Williams fyrirliða Swansea ef marka má fréttir frá Englandi í dag.

Williams hefur verið undir smásjá bæði Arsenal og Liverpool en nú virðist hann vera á leið í fyrrnefnda félagið.

Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur staðið sig vel í vörn Swansea og Arsene Wenger stjóri Arsenal vill fá hann til að styrkja varnarleikinn.

Ef Williams kemur til Arsenal er líklegt að fyrirliðinn Thomas Vermaelen fari frá félaginu en hann átti ekki fast sæti í byrjunarliðinu undir lok tímabils.
Slapp