Heimild: BBC
Slúðrið er á sínum stað á þessum fína föstudegi líkt og aðra daga.
Thomas Vermaelen, fyrirliði Arsenal, er óvænt á óskalista Napoli. (Talksport)
Monaco er að íhuga 26 milljóna punda tilboð í Vincent Kompany fyrirliða Manchester City. (L'Equipe)
Zlatan Ibrahimovic, framherji PSG, gæti farið til Manchester City eða Chelsea í sumar. (Daily Star)
Chelsea er að íhuga tilboð í Burak Yilmaz framherja Galatasaray en hann hefur skorað 32 mörk á tímabilinu. (Metro)
Asmir Begovic markvörður Stoke er á leið til Liverpool á 15 milljónir punda. (The Sun)
Stoke hefur áhuga á hollenska markverðinum Timo Plattel hjá Twente en hann á að veita Jack Butland samkeppni þegar Begovic fer. (Daily Mail)
Cardiff vill fá Danny Graham framherja Sunderland á fjórar milljónir punda. (Daily Star)
Sergio Aguero ætlar að vera áfram hjá Manchester City þrátt fyrir áhuga Real Madrid. (Daily Mirror)
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, vonast til að fá framherann Iago Aspas ódýrt frá Celta Vigo. (Daily Express)
Monaco hefur keypt Joao Moutinho og James Rodriguez frá Porto fyrir samanlagt 60 milljónir punda. (A Bola)
Napoli vill fá Andre Villas-Boas til að taka við af Walter Mazzarri. (Daily Mail)
Manuel Pellegrini stefnir á að ná í fimm titla á jafnmörgum árum hjá Manchester City en hann ætlar sér meðal annars að vinna Meistaradeildina. (Daily Mirror)
Martin Jol, stjóri Fulham, gæti farið til Hamburg í sumar. (Daily Mail)
Kevin Nolan vill að West Ham taki upp veskið í sumar og kaupi leikmenn. (Talksport)
Brendan Rodgers segist einungis ætla að fá sigurvegara í sínar raðir í sumar. (Liverpool Echo)




