Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 24. maí 2013 19:15
Elvar Geir Magnússon
David Gill bjartsýnn á að Rooney verði áfram hjá Man Utd
David Gill sem bráðlega lætur af störfum sem stjórnarformaður Manchester United er bjartsýnn á að Wayne Rooney verði áfram á Old Trafford á næsta tímabili.

Fyrr í þessum mánuði bar Rooney um að vera seldur frá félaginu.

Framtíð Rooney hefur verið mikið til umræðu en Gill segir að viðræður við Rooney og hans talsmenn standi yfir.

David Moyes sem er að taka við Manchester United þekkir Rooney vel en leikmaðurinn lék sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni undir hans stjórn hjá Everton 2002.
Slapp
banner
banner
banner