Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 24. maí 2013 11:12
Magnús Már Einarsson
Flestir halda með Þór/KA
Kvenaboltinn
Þór/KA fagnar marki.
Þór/KA fagnar marki.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
FH var vinsælasta karlaliðið.
FH var vinsælasta karlaliðið.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Kvennalið Þórs/KA er vinsælasta lið landsins samkvæmt könnun sem MMR stóð fyrir á dögunum en þar voru þáttakendur spurðir að því hvaða lið þeir halda með í Pepsi-deild karla annar svegar og Pepsi-deild kvenna hins vegar.

19% þeirra sem tóku þátt í könnunninni völdu lið Þór/KA en kvennalið Breiðabliks endaði í öðru sæti með 11,3%. Karlalið FH og Þórs komu síðan í næstu tveimur sætum.

Kvennalið Þróttar og karlalið FH voru í neðstu sætunum en hér að neðan má sjá niðurstöður úr könnuninni.

Niðurstöður:
1. Þór/KA (Kvenna) 19,0%
2. Breiðablik (Kvenna) 11,3%
3. FH (Karlar) 10,1%
4. Þór (Karlar) 9,8%
5. Breiðablik (Karlar) 9,4%
6-7. ÍBV (Karlar) 9,3%
6-7. KR (Karlar) 9,3%
8. Valur (Kvenna) 8,9%
9. Valur (Karla) 8,5%
10. ÍBV (Kvenna) 7,3%
11. Stjarnan (Kvenna) 7,2%
12. FH (Kvenna) 6,7%
13. ÍA (Karla) 6,6%
14. Fram (Karla) 6,1%
15. Stjarnan (Karla) 5,5%
16. Selfoss (Kvenna) 5,4
17. Fylkir (Karla) 4,5%
18. HK/Víkingur (Kvenna) 4,4%
19-20. Víkingur Ó. (Karla) 4,3%
19-20. Afturelding (Kvenna) 4,3%
21. Þróttur (Kvenna) 4,2%
22. Keflavík (Karla) 3,9%

Samtals sögðust 59,2% halda með knattspyrnuliði í efstu deild karla eða kvenna, 38,6% sögðust ekki halda með neinu liði og 2,2% svöruðu veit ekki/vil ekki svara.

Af þeim sem sögðust styðja lið í efstu deild sögðust 10,9% ekki halda með neinu liði í efstudeild karla og 18,6% sögðust ekki halda með liði í efstudeild kvenna.

Nánari upplýsingar á heimasíðu MMR
Slapp
banner
banner