Spænski framherjinn Isco hjá Malaga vill ekki gefa út neinar nákvæmar upplýsingar varðandi framtíð sína, en hann er sterklega orðaður við Real Madrid.
Real Madrid hefur hafið viðræður við Malaga og þegar lagt inn tilboð en enn hafa liðin ekki komist að samkomulagi þar sem Malaga vill fá að minnsta kosti 35 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Real Madrid hefur hafið viðræður við Malaga og þegar lagt inn tilboð en enn hafa liðin ekki komist að samkomulagi þar sem Malaga vill fá að minnsta kosti 35 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Þá er einnig haldið fram að Isco gæti fylgt þjálfara sínum Manuel Pellegrini til Manchester City í sumar, en Pellegrini er líklegastur til að taka við enska liðinu.
Real Madrid er samt sem áður í bílstjórasætinu um þenna bráðefnilega leikmann, en samningur hans hjá Malaga rennur út 2016.
,,Sjáum til, það kemur í ljós hvað gerist," sagði Isco þegar hann var spurður um framtíð sína.





