Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 24. maí 2013 06:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Man City lagði Chelsea í Bandaríkjunum - Gylfi lék á Bahama
Mynd: Netið
Þó svo að tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni er lokið þá eru sum lið ekki enn komin í sumarfrí þar sem tíminn er nýttur í keppnis- og æfingaferðir.

Til að mynda mættust Chelsea og Manchester City í Saint Louis í Bandaríkjunum í nótt þar sem Manchester City kom til baka og vann leikinn 4-3 eftir að hafa verið 0-3 undir.

Demba Ba, Cesar Azpilicueta og Oscar komu Chelsea í 3-0 en leikmenn Manchester City gáfust ekki upp og náðu að jafna leikinn fimm mínútum fyrir leikslok með marki frá Javi Garcia og tveimur mörkum frá Edin Dzeko.

Í uppbótartíma tryggði síðan Micah Richards Manchester City magnaðan sigur en liðin mætast aftur annað kvöld klukkan 21:30.

Þá lék Gylfi Þór Sigurðsson allan leikinn með Tottenham á Bahama-eyjum þegar liðið gerði markalaust jafntefli við landslið Jamaíka.
Slapp
banner