Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 24. maí 2013 09:15
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Mark Hughes líklegastur til að taka við Stoke
Mark Hughes þykir líklegastur til að taka við liði Stoke City af Tony Pulis.

Forráðamenn Stoke eru spenntir fyrir Hughes og hann hefur sjálfur áhuga á starfinu.

Engar viðræður hafa átt sér stað ennþá en talið er að þær fari af stað í næstu viku.

Hughes hefur verið í fríi frá fótbolta síðan hann var rekinn frá QPR síðastliðið haust.

Hann hefur einnig stýrt Manchester City og Blackburn á ferli sínum sem knattspyrnustjóri auk þess sem hann þjálfaði landslið Wales.
Slapp
banner
banner