Heimild: Sky
Monaco hefur keypt Joao Moutinho og James Rodriguez frá Porto á 70 milljónir evra (um 60 milljónir punda).
Báðir leikmennirnir urðu portúgalskir meistarar með Porto í þriðja skipti í röð á dögunum.
Moutinho kostar Monaco 25 milljónir evra en Rodriguez kostar 45 milljónir.
Þeir munu nú fara til Monaco sem vann sér sæti í frönsku úrvalsdeildinni á nýjan leik.
Rússneski milljarðamæringurinn Dmitry Rybolovlev á Monaco og félagið hefur gífurlega mikla fjármuni undir höndum en Radamel Falcao framherji Atletico Madrid er meðal annars sagður vera á óskalistanum.
Athugasemdir