Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 24. maí 2013 14:15
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Nzonzi fær ekki að fara frá Stoke
Stoke hefur hafnað beiðni Steven Nzonzi um að fara frá félaginu.

Þessi 24 ára gamli leikmaður kom til Stoke frá Blackburn á þrjár milljónir punda í fyrrasumar.

Nzonzi var fastamaður í liði Stoke á leiktíðinni en hann vill þrátt fyrir það fara frá félaginu.

,,Ég get staðfest að við höfum fengið skriflega beiðni frá Steven Nzonzi þar sem hann óskar eftir sölu," sagði Peter Coates formaður Stoke.

,,Hann er leikmaður okkar og hann á þrjú ár eftir af samningi sínum."
Slapp
banner
banner